Trump vill rukka Evrópu um stuðning Bidens við Úkraínu

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að krefja Evrópuþjóðir um endurgreiðslu á þeim stuðningi sem Bandaríkin veittu Úkraínu í tíð Joes Bidens, forvera hans á forsetastóli.„Úkraína og NATO fengu hundruð milljarða dollara að gjöf, ókeypis, sem Evrópa hefði borgað – ef hún hefði verið beðin um það. En við ætlum að biðja um að fá þann pening til baka, að vísu svolítið seint,“ sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Trump Social.Þetta skrifaði Trump í færslu þar sem hann vísaði á bug fréttum um að vopnabúr Bandaríkjahers hefði verulega látið á sjá meðan á stríðinu við Íran hefur staðið. Fjölmiðlar hafa flutt fréttir af því að birgðir hersins af ýmsum skotfærum séu orðnar það litlar að það valdi stjórnendum hersins áhyggjum.Trump sagði að Bandaríkin hefðu látið Úkraínu hafa miklu
Trump vill rukka Evrópu um stuðning Bidens við Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd