Forsætisnefnd aðhefst ekki frekar í máli ríkisendurskoðanda

Máli ríkisendurskoðanda var lokið af hálfu forsætisnefndar Alþingis og honum tilkynnt um það með bréfi 18. ágúst. Þetta staðfestir forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, í samtali við fréttastofu. Hún sagðist ekki geta tjáð sig um meðferð eða lok málsins að öðru leyti.Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi segir málinu einfaldlega lokið og að forsætisnefnd telji ekki tilefni til frekari afskipta af starfsmannamálum hans.Mál ríkisendurskoðanda rataði á borð forsætisnefndar Alþingis í nóvember í kjölfar umfjöllunar fréttastofu um starfsmannamál innan Ríkisendurskoðunar. Starfsfólk lýsti ófremdarástandi og sakaði Guðmund Björgvin um einelti.Þegar þá var komið við sögu voru þrír sviðsstjórar af fimm í veikindaleyfi, þeirra á meðal mannauðsstjóri embættisins. Sviðsstjórarnir þrír
Forsætisnefnd aðhefst ekki frekar í máli ríkisendurskoðanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd