Tveimur var bjargað úr göngum vatnsaflsvirkjunar í Nepal í dag, níu dögum eftir að hamfaraflóð ollu miklum mannskaða og tjóni.Fagnaðarlæti brutust út þegar mönnunum var bjargað úr göngum virkjunarinnar í morgun. Annar þeirra var borinn burt á sjúkrabörum en hinn var uppistandandi. Þeir voru strax fluttir á spítala í Kathmandu til aðhlynningar. Um 900 starfsmanna sem voru í göngum virkjana er enn saknað.Samgönguráðherra Nepal segir í færslu á samfélagsmiðlum að embættismenn séu vongóðir um að hægt verði að bjarga fleiri starfsmönnum úr göngum virkjunarinnar.Talið er að hamfaraflóðin megi rekja til þess að það brotnaði úr jökli. Heilu bæirnir eru í rúst eftir flóðið, sem bar með sér vatn, grjót og leðju. Um 5.600 manns er enn saknað í Nepal og Tíbet. Þá hafa lík um 1.300 manna fundist.