Nokkurra metra langur dróni sem rak á land í Suður-Finnlandi í vikunni var framleiddur í Rússlandi, að því er landhelgisgæsla Finnlands hefur staðfest. Ekki er þó ljóst hvort það hafi verið rússnesk stjórnvöld eða aðrir sem bera ábyrgð á ferðum drónans við Finnland. Hann bar ekki sprengiefni og er talið að hann hafi verið notaður til eftirlits og kortlagningar. Sjómaður sá hann við eyju í Porvoo-eyjaklasanum á þriðjudag og lét yfirvöld vita. Málið er rannsakað sem brot á landhelgi Finnlands. Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands.EPA