Útbjuggu fimm íbúðir til leigu í sérbýli án leyfis

Eigendum húss í Hólahverfi í Reykjavík varð ekki að ósk sinni þegar þeir fóru fram á að byggingarfulltrúinn í Reykjavík gæfi út leyfi fyrir framkvæmdum sem þegar var búið að ráðast í. Útbúnar höfðu verið fimm nýjar íbúðir í sérbýli sem reist var 1973.Eigendurnir sögðu að húsinu hefði verið breytt 1998 en byggingarstjóri sagði að þar sem ekkert leyfi hefði verið gefið fyrir breytingunni og að hún væri umfram leyfilega nýtingu yrði að breyta húsinu aftur til fyrra forms. Það átti að gera innan 60 daga, annars legðust dagsektir á eigendurna.Þetta sættu eigendurnir sig ekki við og kærðu niðurstöðuna til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál. ÚR 287 FERMETRUM Í 430 Í umfjöllun nefndarinnar kemur fram að miðað við lóðarstærð og nýtingarhlutfall megi húsið að hámarki vera 287 fermetrar
Útbjuggu fimm íbúðir til leigu í sérbýli án leyfis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd