Fjórar konur frá Grænlandi fá í dag fyrstu skaðabæturnar í lykkjumálinu. Samkvæmt ákvörðun stjórnvalda í Danmörku gátu konurnar sótt um bætur frá 1. júlí. 342 hafa þegar sótt um, samkvæmt frétt DR, danska ríkisútvarpsins. Búist er við að mun fleiri eigi eftir að sækja um. Upphæðin er 300.000 danskar krónur, sem jafngildir rúmum 5,6 milljónum íslenskra króna. Um áratugaskeið, frá sjöunda áratug síðustu aldar og fram á þann tíunda, settu danskir læknar upp getnaðarvarnarlykkju hjá rúmlega 4.000 grænlenskum konum, mörgum þeirra barnungum. Tilgangurinn var að hindra fjölgun Grænlendinga. Mynd frá fundi Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með konum sem brotið var á í lykkjumálinu. Fundurinn var 24. september 2025.EPA / Mads Claus Rasmussen