Eyvindur P. Eiríksson, cand.mag., rithöfundur og Vestfjarðagoði Ásatrúarfélagsins, er fallinn frá. Greint er frá andláti hans í tilkynningu frá Ásatrúarfélaginu en hann var Vestfirðingagoði um árabil. Eyvindur fæddist þann 13. desember 1935 og var því níræður þegar hann lést.