Meloni slær met á stóli forsætisráðherra

Giorgia Meloni skráði nöfn sín í sögubækurnar í dag þegar hún varð sá forsætisráðherra Ítalíu sem setið hefur lengst samfellt eftir að seinni heimsstyrjöld lauk. Hún hefur gegnt embætti forsætisráðherra í 1.413 daga samfellt. Þar með sló hún met Silvios Berlusconis sem varð þrisvar forsætisráðherra og gegndi því embætti í samanlagt rúm níu ár. Lengsta samfellda valdatíð hans var 1.412 dagar. Ítalía var löngum það land Evrópu þar sem stjórnarskipti voru tíðust. Á síðustu 80 árum hafa 68 ríkisstjórnir verið við völd. Þó hefur dregið mjög úr þeim óróa hin síðari ár og áratugi.Meloni fagnaði tímamótunum í dag og lýsti bæði þakklæti og ábyrgðartilfinningu. Hún sagði að stöðugleiki í stjórnarfari væri forsenda fyrir því að þjóðir gætu skipulagt sig, tekið ákvarðanir, staðið við þær og notið virð
Meloni slær met á stóli forsætisráðherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd