Tugum þúsunda getur munað árlega á æfingagjöldum fyrir handbolta og körfubolta eftir félögum. Æfingagjöld í handbolta geta farið yfir 175 þúsund og í körfubolta geta þau farið yfir 180 þúsund. Frístundastyrkir sveitarfélaga duga mismikið eftir íþróttafélagi og búsetu.Þetta kemur fram í samantekt ASÍ um æfingagjöld í handbolta og körfubolta hjá íþróttafélögum víða um land. Miðað var við tvöfalt haustgjald til að áætla árgjald. Í samanburðinum liggur ekki fyrir hvort vorönnin og haustönnin kosti það sama.Þrír aldurshópar voru sérstaklega skoðaðir, 6 til 7 ára, 10 til 11 ára og 14 til 15 ára. Samkvæmt samantektinni er mikill verðmunur milli félaga og sveitarfélaga og kostnaður almennt meiri eftir því sem börnin verða eldri. Töluverður munur er á gjöldum jafnvel þegar börn á sama aldri eru bor