Útlit er fyrir frekar rólegt veður í dag og á morgun verður vindur með hægasta móti. Í dag blæs aðeins, með golu eða kalda, og aðeins rignir. Blautast verður norðan- og austanlands.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Breytileg átt 3-10 metrar á sekúndu í dag og lítilsháttar skúrir, en víða rigning eða súld norðan- og austanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi.Hæg vestlæg eða breytileg átt á morgun. Dálítil væta norðan- og austantil, en bjart með köflum sunnanlands. Hiti breytist lítið.