Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Bílaleigur gætu þurft að greiða allt að 25 milljarða

Skatturinn mun mögulega krefja nokkrar bílaleigur um allt að 25 milljarða króna samtals vegna meints vangoldins virðisaukaskatts af vátryggingum sem þær hafa selt viðskiptavinum sínum. Bílaleigurnar sem Skatturinn sendi bréf um þetta fyrr á árinu eru allt að átta og þessi upphæð er höfuðstóll virðisaukaskattsins auk álags og vaxta sex ár aftur í tímann. Tekið skal fram og það undirstrikað að Skatturinn hefur ekki tekið ákvörðun um þessa endurálagningu en gæti gert það.Kristinn Jónasson er skattalögfræðingur hjá KPMG sem gætir hagsmuna einhverra af bílaleigunum. Hann segir að þær hafi verið í góðri trú og það hafi verið mat þeirra að þær þyrftu ekki að greiða virðisaukaskatt af seldum vátryggingum. Bílaleigurnar hafi leitað álits hjá Skattinum um þetta. „Þess vegna er þetta svolítið sérstak
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Bílaleigur gætu þurft að greiða allt að 25 milljarða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd