Javier Milei forseti sagði í sjónvarpsávarpi að Falklandseyjar tilheyrðu Argentínu og því þyrfti að ná þeim af Bretum. Ekki þyrfti að rökræða málið, samningaviðræður væru hreinn óþarfi, eyjarnar væru argentínskar hvort sem væri sögulega eða lagalega séð.„Falklandseyjar eru framtíð okkar og mikilvægar þjóðinni. Það er engin önnur leið en að endurheimta þær.“ Falklandseyjar eru lítill eyjaklasi út af Suður-Ameríku. Um þær hefur lengi staðið styr.Eyjarnar hafa verið undir breskum yfirráðum síðan 1833 en Argentínumenn hafa gert tilkall til þeirra síðan 1816 og kalla þær Las Malvinas. Á vordögum 1982 gerði herforingjastjórnin í Argentínu tilraun til að yfirtaka eyjarnar sem lauk með algerum sigri breska hersins 74 dögum síðar.Þá lágu samtals 907 menn í valnum, þar af þrír almennir borgarar. Mar