Engin merki enn um að Rússar beini spjótum sínum að Færeyjum

Færeysk stjórnvöld telja að landinu standi ekki enn bein ógn af einhvers konar árásum af hálfu Rússa. Yfirvöld og lögregla fylgjast grannt með framvindu þeirrar spennu sem ríkir milli Rússa og margra ríkja í Evrópu að sögn Michael Boolsen, talsmanns landsstjórnarinnar.Kringvarpið hefur eftir Marne Weihe, sérfræðingi í málefnum Rússlands, að þótt Færeyjar virðist enn óhultar hafi spenna aukist verulega undanfarið milli Rússlands og ríkja Atlantshafsbandalagsins.Færeyjar geti því orðið fórnarlamb fjölþáttaárásar af hálfu Rússa ekki síður en önnur NATÓ-ríki.Marne Weihe nefnir til dæmis hættu á tölvuárásum eða sæstrengjum. Stóra spurningin sé þó hvað Rússar teldu sig hafa upp úr því að leggja til atlögu að færeyskum innviðum. Versta niðurstaðan væri bein átök milli Rússlands og Atlantshafsband
Engin merki enn um að Rússar beini spjótum sínum að Færeyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd