Trump skipar nýjan ráðherra málefna hersins

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Adam Telle sem starfandi ráðherra málefna hersins eftir að Dan Driscoll sagði af sér eftir deilur við stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth.Adam Telle verður ráðherra málefna Bandaríkjahers.AP/U.S. Army Corps of Engineers / Brigida SanchezSkipun Telles, sem var aðstoðarráðherra borgaralegra verkefna landhersins, tekur strax gildi. Driscoll lét af störfum í septemberbyrjun eftir innbyrðis deilur og vaxandi spennu milli hans og Hegseth.Hann hafði meðal annars lýst megnri óánægju með þær ákvarðanir ráðherrans að reka fjölda háttsettra hershöfðingja. Driscoll var bekkjarbróðir og náinn vinur varaforsetans JD Vance við lagadeild Yale-háskóla.
Trump skipar nýjan ráðherra málefna hersins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd