Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Haraldur Pálsson og Árni Sigfússon forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf varðandi könnun á fýsileika þess að leggja jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja.Á vef Stjórnarráðsins segir að ríkið styðji við undirbúning verksins með miðlun gagna og greininga, ráðgjöf um leyfismál og samvinnu við Eyjagöng um tengingu við vegakerfið.Eyjagöng fjármagni heildstæðar rannsóknir á því hvort fýsilegt sé að fara í verkið, meðal annars hvað snertir jarðfræðilegar og tæknilegar forsendur, umhverfisþætti og umferðarspár.Kjarnaborun á Landeyjarsandi lauk síðasta laugardag og fyrr í sumar við Klifið í Vestmannaeyjum. Þannig hefur náðst að safna öllum gögnum sem þarf til að rannsaka heildstætt hve aðlaðandi er að leggja göng milli lands og