Bandaríkjastjórn hefur leitað til Hæstaréttar til að fá aflétt banni lægra dómstigs við framkvæmd forsetatilskipunar sem ætlað er að draga úr notkun póstatkvæðagreiðslu. Donald Trump forseti undirritaði í mars tilskipun sem ætlað var að draga úr póstkosningum og fullyrti án sannana að þeim fylgdi kosningasvindl.Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar skyldi ríkisvaldið útbúa lista yfir alla skráða kjósendur og póstþjónustan USPS að tryggja að kjörseðlar bærust eingöngu þeim sem þar væri að finna.Uppljóstrari hjá póstinum varaði við því í vikunni að milljónir landsmanna gætu farið á mis við kjörseðla því kerfi þjónustunnar sé gallað, það hafi verið sett upp með afar fljótfærnislegum hætti. RÍKI UNDIR STJÓRN DEMÓKRATA STEFNDU ALRÍKINU UMSVIFALAUST Ríki undir stjórn demókrata stefndu alríkinu st