Hvíta húsið kynnti í dag stafrænan spilasal á vefsíðu sinni með fimm einföldum tölvuleikjum sem tengjast stefnumálum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þar geta spilarar meðal annars reist landamæramúr og vísað innflytjendum úr landi.Í „Build the Wall“ þarf leikmaður að verja landamærin með því að byggja múr í leik sem er byggður á Tetris. Í „Rio Run“, sem minnir á Snake, eltir stafræn útgáfa af Tom Homan, sérstökum fulltrúa Trumps í landamæramálum, innflytjendur við Rio Grande-fljótið á landamærum Mexíkó.Í „Supply Line“ þarf leikmaður að flokka mat eftir kröfum átaksins „Make America Healthy Again“ ( „Gerum Bandaríkin heilbrigð á ný“ er undirskrift leiksins „Supply Line“).Tveir leikjanna tengjast öðrum stefnumálum forsetans. Í „Flappy Bill“ flýgur örn með lagafrumvarp yfir National Mall í