Rut Magnúsdóttir vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar ókunnugur maður gekk upp að henni í Ísbúðinni Háaleiti í Reykjavík fyrir um tveimur árum. „Hann vatt sér bara upp að mér og bauð mér á deit í ísbúð og ég var að spá hvaða vitleysingur þetta væri. Mér fannst þetta samt svolítið spennandi, þannig að ég ákvað að segja já og svo keyptum við okkur bara ísbúð.“