JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin ætli ekki að ræða við írönsk stjórnvöld um endalok stríðsins í Íran fyrr en Íranar hætti að ráðast á kaupskip í og við Hormússund.Í samtali við blaðamenn í Hvíta húsinu í kvöld sagði Vance forseta Bandaríkjanna hafa sagt þetta með mjög skýrum hætti.Hann sagði að varla væri um stríð að ræða, þar sem átök væru ekki viðvarandi. Hann sagði stefnu Bandaríkjanna í stríðinu við Íran virka og að skip sigldu um Hormússund með mikið magn olíu. 15 milljónir tunna af olíu hafi farið um sundið í gær.Á mánudag gerði Bandaríkjaher árásir á hernaðarlega innviði Írana nærri Hormússundi. Það voru fyrstu árásir Bandaríkjahers í rúman mánuð.Vance sagði í kvöld mikilvægt að Bandaríkin gætu fengið sína orku frá mörgum ólíkum stöðum og lofsamaði nýjan olíu