Logi Einarsson, menningar- og nýsköpunarráðherra, segir nauðsynlegt að efla vitund almennings, ekki síst ungs fólks, um mikilvægi þess að greiða fyrir vandaðan fréttaflutning.Hann segir að mun minni vilji sé hér á landi en á hinum Norðurlöndunum til að greiða fyrir fréttaefni og að ungt fólk sé sérstaklega ólíklegt til þess að borga fyrir fréttaáskriftir.„Við þurfum að ná þeirri menningu að fólk líti á þetta sem nauðsynjavöru,“ segir Logi. Fólk þurfi að átta sig á mikilvægi þess að fréttum sé ritstýrt af fagfólki og vera tilbúið að greiða fyrir slíkan fréttaflutning. ÆTLA Í VITUNDARVAKNINGU Logi segir stjórnvöld ætla að fara í vitundarvakningu í samstarfi við Blaðamannafélag Íslands til að auka skilning fólks á hlutverki fjölmiðla.Þetta sé hluti af stærri aðgerðum stjórnvalda til að bre