Til stendur að færa gömlu símstöðina, svokölluðu, á Seyðisfirði á nýja lóð í bænum í haust. Húsið hefur staðið á Búðareyri síðan 1894 en þar sem það er á skilgreindu hættusvæði eftir skriðuföllin 2020 á að færa það í heilu lagi nær miðbænum, á lóð við tjaldsvæðið.Fyrir utan gamlan radíósendi frá loftskeytastöðinni á Seyðisfirði stendur húsið tómt og tilbúið til flutnings.Otto Wathne, norskur athafnamaður sem stundum er kallaður faðir Seyðisfjarðar, reisti húsið fyrir sig og fjölskyldu sína. Seinna var þar fyrsta ritsímastöðin á Íslandi, svo voru þar bæjarskrifstofur og hluti af Tækniminjasafninu.„Okkur þykir vænt um þessi hús en það er skrítið að sjá það sem eftir er af þessum hluta Búðareyrarinnar tæmast. Það eru blendnar tilfinningar þar hjá mér og að ég held mörgum öðrum,“ segir Elfa Hl