Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Alþjóðastofnun Háskóla Íslands, segir að kyrrsetning rússneska skipisins á Svalbarða sé óvenjuleg aðgerð og að búast megi við áframhaldandi þrýstingi Rússa á Noreg vegna málsins.„Þetta er óvenjulegt mál að því leyti að við erum ekki vön því að sjá svona aðgerðir á þessu svæði,“ segir Guðbjörg Ríkey í kvöldfréttum RÚV.Staða Svalbarða sé sérstök en samkvæmt Svalbarðasáttmálanum frá 1925 séu eyjarnar undir norskum yfirráðum. „Íbúar þeirra aðildarríkja sem skrifa undir sáttmálann mega búa, vinna, meira að segja grafa eftir málmum á svæðinu og þurfa ekki vegabréfsáritun til þess,“ segir Guðbjörg Ríkey.Allur hernaður er þó óheimill á Svalbarða. „Noregur má senda Landhelgisgæsluna sína, en ekki herskip.“Guðbjörg Ríkey