Nýtt og stærra Kvennaathvarf opnað: „Tilfinningin er óraunveruleg“

Nýtt og stærra kvennaathvarf var formlega opnað í dag. Framkvæmdastýra segir að þörf fyrir þjónustu hafi verið mikil að undanförnu.„Tilfinningin er óraunveruleg eftir allan þennan undirbúning. Þetta er fyrsta athvarfið á Íslandi sem er byggt sem slíkt og allur undirbúningur er með konur og börn í huga og hönnun,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.„En hún er líka ljúfsár. Hún er sár yfir því að við þurfum að auka við þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis á Íslandi. Við myndum vilja vera að skrúfa hana niður því við viljum vinna á þessu bug.“Nýtt og stærra Kvennaathvarf var formlega opnað í dag. Um 500 konur leita til athvarfsins á hverju ári til að fá ráðgjöf og stuðning. SÖFNUÐU 600 MILLJÓNUM Fjörutíu og fjögur ár eru síðan Kvennaathvarfið var opnað
Nýtt og stærra Kvennaathvarf opnað: „Tilfinningin er óraunveruleg“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd