„Almenningur ætlar ekki einn að taka þessa ábyrgð á sig“

Fundir eru haldnir á mörgum vígstöðvum um hvernig bregðast á við mikilli verðbólgu og þar með forsendubresti kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Viðsemjendur á almenna vinnumarkaðnum áttu fund fyrir hádegi og Þjóðhagsráð hittist eftir hádegi.Þjóðhagsráðsfund í dag sátu formenn ríkisstjórnarflokkanna og fjármálaráðherra, forystufólk ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Samtaka atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands. Ráðið á að fjalla um stöðu í efnahags- og félagsmálum og ræða samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni. Ætla má að verðbólga hafi verið eitt aðalumræðuefnið í dag. Í kjarasamningum er kveðið á um að ef ársverðbólga í ágúst er yfir 4,7% má segja samningum upp. Hún mældist 5,6%.Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Landssamban
„Almenningur ætlar ekki einn að taka þessa ábyrgð á sig“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd