Eigandi Hringekjunnar hringrásarverslunar segir algengt að fólk kaupi hraðtískuflíkur í miklu magni vegna lágs verðs. Frakkar hertu í dag reglur um svokallaða hraðtísku og stefna að því að setja sérstakt gjald á hverja flík, með því vilja stjórnvöld draga úr sölu á ódýrum fatnaði á netinu. VERÐIÐ SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA Jana Maren Óskarsdóttir á og rekur verslunina Hringekjuna með eiginmanni sínum. Verslunin selur notaðar flíkur í básaleigu. Jana segir fólk einmitt leita í lægra verð með því að kaupa hraðtísku. En verðið segir þó ekki alla söguna.„Það sem við höfum alltaf hugsað: Ef verðið er svona lágt, þá hlýtur einhver annar að vera að gjalda fyrir það í keðjunni, framleiðslukeðjunni eða ferlinu. Þannig að það er einhver sem á ekki að fá greitt eða vinnan er ekki í lagi, umhverfið ekk