Forsvarsmenn netáfengisverslunarinnar Santé hafa kvartað til nefndar um eftirlit með lögreglu (NEL) vegna starfshátta tveggja lögregluembætta.Annars vegar lýtur kvörtunin að meintu aðgerðarleysi lögreglustjórans á Suðurnesjum við meðferð á kæru Santé á hendur þýska fyrirtækisins Heinemann og hins vegar lýtur hún að rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á smásölu áfengis.Þá er einnig kvartað vegna almennra starfshátta lögreglu og ósamræmis milli umdæma. ANNAÐ MÁLIÐ ÓAFGREITT EN HITT SÓTT AF FULLUM ÞUNGA Heinemann tók yfir rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli árið 2025, en Santé kærði fyrirtækið til lögreglu vegna ólögmætrar smásölu á áfengi í fríhöfninni og sagði ósamræmi í beitingu laga óásættanlegt.Í kvörtuninni bendir Santé á að kæra gegn stórum, erlendum rekstraraðila li