Stjórnvöld í Rússlandi krefjast þess að fá strax til baka skip sem í gær var kyrrsett við kolanámubæinn Barentsburg á Svalbarða. Skipið var kyrrsett að kröfu úkraínska orkufyrirtækis Naftogas sem krefst bóta frá RússumGrunur er um að skipið, sem heitir Prófessor Molchanov, hafi verið notað við áróðursstarfsemi og skipulagningu fjölþáttaógna. KREFJAST BÓTA SAMKVÆMT ÚRSKURÐI DÓMSTÓLS Lars Fause, norski sýslumaðurinn á Svalbarða, sagði skipið hafa verið kyrrsett vegna úrskurðar héraðsdóms Norður-Troms og Senja. Með kyrrsetningunni eigi að tryggja að Rússar standi við skuldbindingar sínar gagnvart Naftogas. Fyrirtækið krefst þess að fá upphæð sem jafngildir 4,2 milljörðum bandaríkjadala í bætur eftir að Rússar gerðu eignir þess upptækar við innlimun Krímskaga 2014. Alþjóðadómstóllinn í Haag