Verkefnastjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur lagt til átta verndarsvæði sem setja 14 virkjanakosti í verndunarflokk. Um er að ræða fjögur vatnasvið og fjögur háhitasvæði. Vatnasviðin eru Jökulsá á Fjöllum, Hólmsá, Tungnaá og Jökulfall og Hvítá. Háhitasvæðin eru Brennisteinsfjallasvæði, Geysissvæði, Kerlingafjallasvæði og Gjástykkissvæði. Tillögur verkefnastjórnar birtust í samráðsgátt í vikunni og stendur umsagnartímabil til 23. nóvember. Meðal virkjanahugmynda sem færu í...