Þorir ekki að fullyrða að Icelandair og flugmenn nái að semja á settum tíma

Kjaradeila Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna er snúin og óbreytt. Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.Icelandair og FÍA undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu og sögðust þar stefna að því að klára kjarasamninga fyrir 15. september. Þau skuldbundu sig einnig til að standa saman á meðan á viðræðum stæði. Aðspurður kveðst Ástráður ekki þora að fullyrða um hvort samningar náist fyrir þann tíma.Spurður hvort kaup Icelandair á Fly Play Europe hafi sett stórt strik í reikninginn í viðræðunum segist Ástráður ekki kunna að mæla það í neinum hlutföllum, en að kaupin hafi vissulega verið til umræðu.Umfjöllun Kastljóss um þreytukönnun flugmanna FÍA hafi aftur á móti ekki borist í tal á fundinum í dag.
Þorir ekki að fullyrða að Icelandair og flugmenn nái að semja á settum tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd