Reykjavíkurborg ætlar að gefa uppbyggingaraðilum meira svigrúm til að ákveða stærð og herbergjafjölda íbúða og draga úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum. Samfylkingin segir breytingarnar veikja skipulagsramma borgarinnar og geta gert áætlanir um innviði ómarkvissar.