E. coli-hópsmit á Mánagarði enn á ákærusviði: Einn með stöðu sakbornings

Rannsókn á E. coli-hópsmiti sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október 2024 er enn til meðferðar á ákærusviði lögreglu. Málið hefur verið þar síðan í janúar á þessu ári eða í um 8 mánuði.Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs, segir aðeins einn með stöðu sakbornings í dag. Áður voru fjórir með stöðu sakbornings, þar á meðal matráðurinn og Félagsstofnun stúdenta, sem á og rekur leikskólann. Árni vildi ekki gefa upp hver væri einn eftir með réttarstöðu sakbornings.Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort ákært verði í málinu og segir Árni það enn til skoðunar. Hann kvaðst ekki vilja fullyrða um hvort líklegt væri að svo færi.Hann segir ákærusvið í tvígang hafa sent málið aftur til rannsóknar hjá lögreglu síðan í janúar en að það hafi verið á borði ákærusviðs síðan
E. coli-hópsmit á Mánagarði enn á ákærusviði: Einn með stöðu sakbornings

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd