Yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að tólf vikna hámarkslengd gæsluvarðhalds yfir sakborningum hafi orðið til þess að lögregla næði ekki að ljúka rannsókn á ákveðnum þáttum sakamála. Hann fagnar tillögum um rýmkaðar heimildir til eignaupptöku og segir aukna notkun á löggæslumyndavélum í samræmi við aðgerðir annarra ríkja í átaki gegn skipulagðri brotastarfsemi.Lenging hámarksgæsluvarðhalds úr tólf vikum í sex mánuði er meðal tillagna dómsmálaráðherra um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Drög að frumvarpi birtust í samráðsgátt stjórnvalda í gær.Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra, segir tillögurnar endurspegla reynslu lögreglu af því hve langan tíma tekur að rannsaka flókin sakamál. Umfang stafrænna gagna hafi aukist v