Hlutabréfaverð Amaroq, sem var nýlega skráð á aðalmarkaðinn í London, hefur hækkað nokkuð eftir að ljóst varð að auðlindafélagið yrði tekið inn í tvær vísitölur hjá FTSE Russell síðar í þessum mánuði. Innkoman þýðir að Amaroq kemst á radarinn hjá stærri hópi fjárfesta en alþjóðlegir vísitölusjóðir þurfa núna að kaupa í félaginu.