Goethe-stofnunum í Rússlandi lokað

Stjórnvöld í Rússlandi ætla að láta loka Goethe-stofnunum í Moskvu, Pétursborg og Yekaterinburg. Sergei Lavrov utanríkisráðherra segir þetta svar við þeirri ákvörðun stjórnvalda í Rússlandi að láta loka Húsi rússneskrar menningar í Berlín eftir ásakanir um að Rússar bæru ábyrgð á tilraun til drónaárásar á flugvelli í Leipzig.„Auðvitað verður þeim lokað eftir að okkar menningarmiðstöð var lokað þar,“ sagði Lavrov á efnahagsráðstefnu í Vladivostok.Utanríkisráðherra Þýskalands, Johan Wadephul, segir Goethe-stofnunina hafa gegnt mikilvægu hlutverki sem menningarbrú sem þýsk stjórnvöld hafi verið reiðubúin að viðhalda. Þá sagði ráðherrann að almennt hafi verið góð samskipti milli fólks í Rússlandi og Þýskalandi. Ráðamenn í Rússlandi hafi verið vandamálið. Hvað er Goethe-stofnun? Goethe-stofnani
Goethe-stofnunum í Rússlandi lokað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd