Útlit er fyrir að veðurfyrirbærið El Niño verði öflugra í ár en nokkru sinni síðan Alþjóðaveðurfræðistofnunin byrjaði að mæla umfang þess fyrir 40 árum.Stofnunin segir að El Niño færist í aukana á næstu mánuðum og auki hættu á flóðum, þurrkum og hitabylgjum. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að El Niño yrði með versta móti. Sjávarhiti fari hækkandi, hitastig líka og að heiminum steðji hættulegar öfgar í veðri.Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir það gerast af og til að El Niño verði mjög öflugur. „Síðasti stóri af þessari stærðargráðu var 2015 og þar áður 1998 og svo koma oft minni El Niño-atburðir á milli. Það er í sjálfu sér ekki nein ein hlít skýring. Allavega er ekki vitað hvers vegna sumir verða stærri en aðrir,“