Umferðarljósin á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar og Nýbýlavegs, Dalvegar og Skemmuvegar eru óvirk.Þetta veldur nokkrum vandræðum því búið er að loka Nýbýlavegi í báðar áttir yfir brúna yfir á Breiðholtsbraut, einnig beygjuakrein til vesturs yfir brúna í Mjódd og beygju að Breiðholtsbraut og til suðurs.Ljósin biluðu í morgun og er unnið að því að gera við þau. Óvíst er hversu langur tími líður áður en þau komast í lag.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir viðbúið að umferð tefjist af þessum sökum. Hún brýnir fyrir bílstjórum að fylgja umferðarmerkjum og hugsanlega að fara aðra leið seinnipartinn.Safnmynd.Moritz Kindler