„Að fara á fjall er alltaf tilhlökkunarefni,“ segir Jón Bjarnason bóndi í Skipholti; oddviti Hrunamannahrepps og fjallkóngur. Bændur og búalið í sveitinni undirbúa að fara á afrétt og fyrstu 15 fjallmennirnir leggja upp á morgun, föstudag.