Ferðamálastofa hefur boðað viðbragðsaðila, landeigendur við Stuðlagil og fulltrúa frá ferðaþjónustu og heilbrigðisstofnuninni á Austurlandi á fund vegna banaslyss í Stuðlagili í síðustu viku.39 ára pólskur ferðamaður lést þegar hann féll í gilið. Þetta er annað banaslysið á tveimur árum. Sérfræðingur öryggismála hjá Ferðamálastofu segir að farið verði yfir það sem gerðist og hvað megi læra af því.