Skoða hvort bregðast þurfi við þreytukönnun flugmanna

Samgöngustofa metur hvort bregðast þurfi við niðurstöðum úr þreytukönnun hjá flugmönnum. Félag íslenskra atvinnuflugmanna lagði könnunina fyrir flugmenn Icelandair. 56% þeirra sögðust hafa sofnað við störf um borð í sumar.Könnunin var lögð fyrir alla flugmenn Icelandair í fyrri hluta ágúst. 508 flugmenn, tæplega 80% félagsmanna, svöruðu. Þeir voru spurðir um reynslu sína undanfarna þrjá mánuði. 90% telja vinnuálag hafa neikvæð áhrif á flugöryggi og þriðjungur treysti sér illa til þess að segjast ekki ætla að fljúga.Níu af hverjum tíu töldu vinnuálag og vaktafyrirkomulag ekki ganga upp með tilliti til þreytu. Mikill munur reyndist á svörum eftir flugvélaflotum. Þreyta sem bitnaði á árvekni í starfi var mest meðal flugmanna Boeing 737-flotans. META HVORT FYLGJA ÞURFI MÁLINU EFTIR Þórhildu
Skoða hvort bregðast þurfi við þreytukönnun flugmanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd