„Óþarfasta ríkisstofnunin með greini“

Ólöf Skaftadóttir, annar stjórnenda hlaðvarpsins Komið gott, fer hörðum orðum um Fjölmiðlanefnd í Dagmálum, og kallar hana „óþörfustu ríkisstofnunina með greini“. Ólöf og Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, ræddu stöðu sjálfstæðra hlaðvarpa og fjölmiðla við Andrés Magnússon í Dagmálum Morgunblaðsins. Ólöf sagðist treysta sér til að keppa við hlaðvörp Ríkisútvarpsins á jafningjagrundvelli, en ofan á þá samkeppni þyrftu litlir sjálfstæðir miðlar að glíma við eftirlit Fjölmiðlanefndar.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd