Stjórnvöld í Frakklandi hafa hert reglur um svokallaða hraðtísku. Stefnt er að því að setja sérstakt gjald á hverja flík. Eftir fjögur ár gæti gjaldið verið allt að tuttugu evrur, sem jafngildir um 2.800 íslenskum krónum, á hverja flík. Með þessu vilja stjórnvöld draga úr sölu á ódýrum fatnaði á netinu. Verð í slíkum verslunum er oft mjög lágt og það getur virkað hvetjandi á neytendur að kaupa mikið.Reglur um gjaldið tóku gildi í fyrradag. Þær eru byggðar á lögum sem voru samþykkt í júní og er sérstaklega beint að fyrirtækjum sem selja ódýr föt á netinu, eins og Shein, Temu og AliExpress. NÍU EVRA GJALD Á GALLABUXUR OG 12 FYRIR JAKKA Á þessu ári verður gjaldið frá hálfri evru fyrir nærföt upp í tvær fyrir stuttermaboli. Gjald fyrir gallabuxur verður níu evrur, sem jafngildir 1.265 íslen