Hernaðarlegt og landfræðilegt mikilvægi Íslands hefur aukist eftir því sem spenna eykst á norðurslóðum, segir í frétt AFP fyrr í dag. Þar er haft eftir skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins að ástandið sem við búum við sé sambærilegt því sem var í kalda stríðinu, en óvissan sé jafnvel meiri.