Stærðarinnar borgarísjakar lóna nú úti fyrir Hrauni á Skaga á Norðurlandi. Mikið hefur borið á borgarísjökum sem lóna við landið í sumar en þeir berast flestir frá stærðarinnar íseyju sem hefur hringsólað milli Vestfjarða og Grænlands síðustu vikur.„Þessi er svolítið flykki, hún er fimm kílómetrar að lengd þannig þetta er enginn smá jaki,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og hafíssérfræðingur við Háskóla Íslands.Íseyjan hefur lent í hverjum hvirflinum á fætur öðrum og hefur því mikið af ís brotnað úr henni og borist til landsins.„Það hefur meira borið á þessu í sumar en þetta er ekki óvanalegt sem slíkt.“Róbert Daníel Jónsson íbúi á Blönduósi náði myndum af borgarísjökunum í vikunni. Sjón er sögu ríkari. BRÝNIR FYRIR FÓLKI AÐ HALDA SIG FJÆR JÖKUNUM Ingibjörg segir það vera vara