Gera nýtt umhverfismat fyrir Hvalárvirkjun

Vesturverk vinnur að nýju umhverfismati fyrir Hvalárvirkjun á Ströndum. Talsmaður segir að ef allt gengur að óskum geti framkvæmdir hafist 2028 og virkjunin skilað orku inn á kerfið 2031.„Staðan er sú að við erum að vinna að því að klára undirbúning virkjunarframkvæmdanna og þar er endurgerð umhverfismatsins efst á blaði,“ segir Birna Lárusdottir, upplýsingafulltrúi HS Orku.Umhverfissamtök kærðu framkvæmdaleyfið þar sem þau töldu annmarka á umhverfismatinu og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi framkvæmdaleyfi Árneshrepps úr gildi í vor. Úrskurðarnefndin taldi verulega annmarka á áliti Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdaraðila. Matsskýrslan sjálf hafi verið haldin slíkum annmörkum að hún væri ekki fullnægjandi grundvöllur til töku ákvörðunar um framkvæmdina. Vesturverk
Gera nýtt umhverfismat fyrir Hvalárvirkjun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd