Þýsk stjórnvöld hafa opinberlega sakað Rússa um misheppnaða drónaárás á Leipzig-Halle flugvöllinn. Úkraínskt flutningaflugfélag er með aðalstöðvar sínar þar og mikið af hergögnum og aðstoð til Úkraínu fer um flugvöllinn. Rússar segja Þjóðverja hafa komið sönnunargögnum fyrir. Margir hafa lýst drónaárásinni sem hryðjuverki. MÖGULEGAR MÓTAÐGERÐIR RÆDDAR Utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja þinguðu á Írlandi á miðvikudag og þar voru svokallaðar fjölþáttaárásir Rússa mikið til umræðu. Evrópusamband undirbýr 22. refsipakka gegn Rússlandi sem á að ná til meira en fimmtán hundruð fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Fréttaskýrendur hafa bent á að hugsanlega verði gripið til harðari aðgerða gegn skuggaflota Rússa sem þeir nota til að flytja út olíu. DANSKIR BÆNDUR MÓTMÆLA Danska þingið gre