Segir síðustu daga dótturinnar hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar

Móðir írsku stúlkunnar sem lést í bílslysi á dögunum segir síðustu daga dóttur sinnar, Hönnuh Jane Large, hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar.Í athugasemd við færslu Höllu Tómasdóttur forseta Íslands segist hún hafa talað við dóttur sína kvöldið sem hún lést og lífsgleðin skinið af henni.Stúlkan var meðal þriggja ungmenna sem létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Auk hennar létust 16 ára íslensk stúlka og tvítugur íslenskur maður.Halla Tómasdóttir birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún minntist ungmennanna og sagði hug sinn hjá fjölskyldum þeirra og vinum. Engin orð nái utan um slíkan missi.Móðirin, Sam Large, þakkar Höllu fyrir yfirlýsinguna. Hún segir dóttur sína hafa kolfallið fyrir Íslandi, fólkinu og að síðustu dagar hennar hafi verið þeir hamingjusömustu
Segir síðustu daga dótturinnar hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd