Stjórnandi Facebook hópsins Áfram stelpur hyggst stofna félagasamtök utan um hópinn sem ætlað er að aðstoða þolendur ofbeldis. Hún segir fjölda þeirra sem orðið hafa fyrir allskyns ofbeldi á Íslandi vera sláandi og flestir þolendur séu yfirleitt með fleiri en einn gerenda. Dómskerfið hafi brugðist.