Tekjur landsmanna hækkuðu umfram verðbólgu

Landsmenn höfðu að meðaltali 10,5 milljónir króna í tekjur í fyrra eða 875 þúsund krónur á mánuði. Helmingur var með heildartekjur undir 730 þúsund krónum á mánuði.Þetta kemur fram í yfirliti Hagstofunnar um heildartekjur einstaklinga í fyrra. Inn í þá útreikninga falla atvinnutekjur, fjármagnstekjur og aðrar tekjur.Launin hækkuðu um 5,7 prósent milli ára, það þýðir að laun hækkuðu um 1,6 prósent þegar búið er að gera ráð fyrir verðbólgu. Miðgildi launa var 730 þúsund og hækkaði um 1,5 prósent umfram verðbólgu.Frá undirritun kjarasamnings 2024.RÚV / Benedikt Sigurðsson
Tekjur landsmanna hækkuðu umfram verðbólgu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd