Formaður SÁÁ vísar ásökunum starfsfólks um að stjórn félagsins hafi afskipti af faglegu starfi á bug. Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ hefur sagt upp störfum af þessum ástæðum eftir að forstjóri lét af störfum í síðasta mánuði.„Stjórn SÁÁ ber ábyrgð á stjórnun og stefnumótun samtakanna en faglegar ákvarðanir í meðferð og heilbrigðisþjónustu eru ávallt teknar af fagfólki innan þeirra laga og rekstrarramma sem gildir um starfsemina,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ.„En við höfum auðvitað eftirlit með starfseminni og okkur ber náttúrulega að bara samkvæmt lögum að hafa eftirlit, þannig að ég er ekki samþykkt í því sem þær segja,“ segir Anna Hildur.Fréttastofa ræddi við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, sem hefur sagt starfi sínu lausu. Hún sakar stjórn