Ísraelskir hermenn drápu tvo drengi í Al-Mughayyir-þorpinu, norðaustur af Ramallah, í nótt. Annar var 16 ára og hinn 19 ára.Ísraelsher réðst inn í þorpið og skaut á fólk eftir að til átaka kom vegna sauðaþjófnaðar.Amin Abu Alia, formaður þorpsráðsins í Al-Mughayyir, sagði að til átaka hefði komið þegar ísraelskir landtökumenn hefðu reynt að stela sauðfé frá tveimur heimilum í þorpinu. Eftir það hefðu ísraelskir hermenn umkringt þorpið og síðan ráðist inn í það. Hann sagði að herinn hefði komið fyrir leyniskyttum sem hefðu skotið á Palestínumenn sem áttu í útistöðum við landtökumenn.Ísraelski herinn sagði að hann hefði viljað tryggja innganginn í þorpið og sjá til þess að sauðfé sem hefði verið stolið af landtökumönnum væri skilað. Þá hefðu brotist út óeirðir og heimamenn grýtt hermenn.Pale